Camille Saint-Saëns

Camille Saint-Saëns
Play takki

Camille Saint-Saëns
Tónskáld, píanóleikari og organisti frá Frakklandi, fæddist í París 1835 en dó í Alsír (Afríku) 1921.

Hann kom fyrst fram á tónleikum sem píanóleikari 10 ára gamall.  Lærði á orgel og tónsmíðar í Tónlistarháskóla Parísar og varð síðan organisti 1858 – 1877 í kirkjunni Madeleine í París. Saint-Saëns var virkilega góður hljóðfæraleikari og hann hélt tónleika víðs vegar um heiminn,  meðal annars í Asíu og Afríku.  Hann skildi eftir sig mörg tónverk og er Karnival dýranna meðal hans þekktustu og oftast fluttu verka.