Fíllinn
Fíllinn
Og hér kemur til leiks fíllinn, túlkaður af kontrabassanum (stærsta strengjahljóðfærinu), og spilar vals við undirleik píanósins. Nokkrir þungir hljómar tilkynna komu þessa stóra hlunks og svo hefst dansinn!!!!
Seinni hluti laglínunnar fær tónskáldið tónlist lánaða frá kollega sínum Hector Berlioz sem heitir “Dans Sylphes”
Loftandarnir (Sylphes) eru ævintýraverur léttar og himneskar og þannig kemur Saint- Saens með algjöra andstæðu inn í þungan dans fílsins sem hér er í aðalhlutverki.... hann var mikill húmoristi Saint- Saens.
