Skjaldbökur

Skjaldbökur

Skjaldbaka

Til að túlka þessi mjög hægfara dýr, fær Saint Saens lánaða tónlist úr mjög frægri franskri ballett tónlist:  Can Can eftir vin sinn Jaques Offenbach.

En aumingja skjaldbökurnar, þrátt fyrir að þær langi svo mjög til að dansa svona hratt og flott geta þær það ekki og er eina lausnin að hægja á tónlistinni fyrir þær.....   og hér er afraksturinn: þríundir í sextándapörtum, spilaðar á píanóin, blandast einföldum takti strengjanna og þannig verður til nokkurs konar ölduhreyfing í tónlistinni.

Þannig skapast dálítið sérstakur Can-Can sem passar okkar hægu vinum, skjaldbökunum.

Skjaldbökur - nótur

úff...  núna geta skjaldbökurnar varpað öndinni léttar: þessi Can can er nú í réttum takti fyrir þær.