Svanurinn
Svanurinn
Nú stoppar allt því mættur er sjálfur svanurinn!!
Svanurinn er frægasta og mest flutta verk Saint- Saens. Það er einnig eini kaflinn sem er ekki byggður á gríni, bara yndisleg tónlist, tignarleg og glæsileg.
Þessi fallega laglína er spiluð af sellóinu, meðan píanóin spila viðkvæma og hrífandi brotna hljóma.

